Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag og hefur MSCI Kyrrahafs vísitalan, sem lækkaði um 1,8% í dag, ekki verið lægri frá því í nóvember 2006 að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Í Japan lækkaði Nikkei um 2,5%, í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 3,2% og í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 2,2%.

Í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 1,8% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 um 1,4%.

Það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins að sögn Bloomberg en þannig lækkuðu japönsku bankarnir Mitsubishi og Mitsui um 3,4% og 4,1%. Þá lækkaði Bank of East Asia í Hong Kong um 5,9% en talið er að afskriftir bankans verði tvöfalt á við það sem þegar hafði verið gert ráð fyrir.