Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst töluvert á milli vikna í síðustu viku en þá hafði veltan að vísu ekki verið lægri síðan um miðjan júní.

Þannig nam veltan í vikunni 2.080 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 1.211 milljónir króna veltu í síðustu viku og jókst því um 72% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkaði einnig nokkuð í vikunni en í vikunni á undan hafði hún ekki verið lægri frá því í lok ágúst. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta í síðustu viku 1.811 milljónum króna en hefur lækkað um 70 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur lækkað um 21% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta hækkað um 103% á milli ára. Á sama tíma í fyrra voru þó miklar og óvenjulegar sviptingar á markaði þegar vikuveltan fór yfir 5 milljarða króna.

Tólf vikna meðalvelta jókst  á milli vikna í vikunni eða um 24 milljónir króna, og nemur nú 1.986 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.596 milljónir króna á viku og hefur aukist um 28% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 70 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 49 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 55 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkaði nokkuð á milli vikna í síðustu viku og nam 29,7 milljónum króna, samanborið við 24,7 milljónum króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,4 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðaltal síðustu 12 vikna er 27,4 milljónir króna.