Samninganefndir tónlistarkennara og sveitarfélaganna skrifuðu undir samning eftir langa samningalotu í húsakynnum Ríkissáttasemjara um klukkan hálfsex í morgun. Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistarkennara, segir í samtali við fréttastofu RÚV að verkfallið hafi tekið á en hún sé sátt við nýjan samning.

Hún segir að kennsla hefjist strax í dag í tónlistarskólum. Samningurinn verður nú borinn undir félagsmenn og á niðurstaða úr atkvæðagreiðslu þeirra að liggja fyrir 8. desember.

Sigrún segir að skrifað hafi verið undir samning til skamms tíma og hann innihaldi ekki miklar kerfisbreytingar. „Þetta er alltaf málamiðlun og tók svolítið á. Við vorum að reyna að fá launaleiðréttingu, vorum búin að dragast aftur úr. Við tókum nokkur skref í þá átt núna og nú bara að sjá hvað félagsmenn segja,“ segir Sigrún í samtali við RÚV.