Toyota þarf að innkalla 7,4 milljónir bíla á heimsvísu vegna framleiðslugalla. Töluvert hefur verið fjallað um málið í erlendum fjölmiðlum í dag þar sem meðal annars hefur komið fram að fjöldi innkallaðra bíla er um það bil sá sami og fjöldi þeirra bíla sem Toyota framleiðir árlega.

VB sjónvarp hitti Pál Þorsteinsson, upplýsingafulltrúa Toyota, og ræddi við hann um málið.