Nýskráningar ökutækja á fyrstu 340 dögum ársins (01,01,'08 - 05,12,'08) er samtals 17.405 en á sama tímabili í fyrra voru 28.595 ökutæki nýskráð hér á landi.

Þetta er 39,1% fækkun nýskráninga milli ára.

Þetta kemur fram á vef Umferðarstofu en stofnunin hefur tekið saman yfirlit yfir nýskráningar ökutækja og eigendaskipti á tímabilinu frá 1. janúar 2008 til 5. desember 2008.

Þar kemur fram að í fyrstu vinnuviku desember mánaðar á þessu ári voru skráð 32 ökutæki en á sama  tímabili í fyrra voru þau 471. Þetta er aðeins 6,8% þess fjölda sem var nýskráður á sama tíma í fyrra.

Hafa skal í huga að hér er um að ræða nýskráningu og eigendaskipti allra ökutækja ekki bara bifreiða.

Eigendaskipti ökutækja á sama tímabili þessa árs eru 79.322 en þau voru 100.270 eftir jafn marga skráningardaga á síðasta ári. Hlutfallsleg lækkun eigendaskipta nemur því 20,9% milli ára.