Velta í dagvöruverslun dróst saman um 8,9% á föstu verðlagi í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra.

Á breytilegu verðlagi jókst velta dagvöruverslunar um 19,1% miðað við sama mánuð í fyrra.

Þetta kemur fram á vef Rannsóknarseturs verslunarinnar á Bifröst.

Þar kemur fram að síðustu fjóra mánuði hefur velta dagvöruverslunar í hverjum mánuði verið minni en sömu mánuði árið áður að raunvirði. Verð á dagvöru hækkaði um 30,6% á einu ári, frá nóvember í fyrra til nóvember á þessu ári og um 3,9% frá mánuðinum á undan.

Sala á áfengi minnkar

Sala á áfengi minnkaði um 15,5% í nóvember miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og um 1,2% á breytilegu verðlagi.

Verð á áfengi hækkaði um 16,9% í nóvember síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt verðmælingu Hagstofu Íslands. Miklar sveiflur hafa verið í veltu áfengis á undanförnum mánuðum.

Þá kemur fram að eftir óvenjumikla veltuaukningu í október minnkaði salan aftur í nóvember um 28,5% á föstu verðlagi.

Skóverslun ekki minni frá því í mars

Í nóvember varð einnig samdráttur í fataverslun miðað við sama mánuð árið á undan. Veltan minnkaði um 17,8% á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra og um 1,2% á breytilegu verðlagi á sama tímabili.

Verð á fötum hækkaði um 19,8% á einu ári og um 2,5% frá mánuðinum á undan.

Þá minnkaði velta skóverslunar um 10,3% í nóvember á föstu verðlagi en jókst um 0,4% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra.

Að sögn Rannsóknarseturs verslunarinnar hefur skóverslun ekki verið minni frá því í mars síðastliðnum ef miðað er við fast verðlag. Verð á skóm hefur hækkað um 11,6% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Í nóvember minnkaði velta í húsgagnaverslun um 43,4% á föstu verðlagi miðað við nóvember í fyrra og um 28,6% á breytilegu verðlagi.

Fram kemur í skýrslu Rannsóknarseturs að þó húsgagnaverslun hafi verið mun minni í nóvember síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra jókst hún um 21,7% frá mánuðinum á undan. Verð á húsgögnum hefur hækkað um 26,2% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Gert ráð fyrir minni jólaverslun

Skýrsluhöfundar segja greinilegt að efnahagssamdráttur og verðhækkanir hafa sett mark á smásöluverslun.

Fram kemur í skýrslu Rannsóknarseturs að samdrátturinn bitnar fyrst og fremst á verslun með dýrar og varanlegar neysluvörur, en einnig á verslun sem selur matvörur og aðrar nauðsynjar.

Veltuvísitala dagvöruverslunar á föstu verðlagi og leiðrétt fyrir daga- og árstíðarbundnum þáttum hefur lækkað fjóra mánuði í röð og hafði dregist saman um 7,7% í nóvember frá júlí síðastliðnum.

Þá segja skýrsluhöfundar meiri samdrátt vara í einkaneyslu nú en um langt árabil en kaupmáttur launa var 5,8% minni í október síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra.

Raunlækkun varð í greiðslukortaveltu á tímabilinu janúar til október um 6,1% miðað við sama tímabil í fyrra. Nýskráningar bíla voru 123 í nóvember og hafa ekki verið svo fáar frá því að Hagstofan hóf að birta þær tölur árið 1995.

„Þannig sjást skýr merki um að einkaneysla hefur dregist saman að undanförnu og líklegt verður að teljast að jólaverslunin verði minni í ár en í fyrra,“ segja skýrsluhöfundar.

Sjá skýrslu Rannsóknarseturs verslunarinnar.