Hópur nýrra fjárfesta sem kemur inn í félagið er leiddur af Crowberry Capital, fjárfestingasjóði sem stofnaður var á árinu.

200 þúsund ferðamenn nota Travelade

Travelade er upplýsinga- og bókunarvefur fyrir ferðamenn sem hefur vaxið ört frá því að www.travelade.com fór í loftið síðastliðið sumar. Yfir 200 þúsund ferðamenn hafa nýtt sér þjónustu Travelade sem gerir fólki kleyft að finna og bóka afþreyingu eftir sínum persónulega ferðasmekk. Þjónustan er nú þegar opin fyrir ferðamenn á leið til Íslands og Bosníu en fleiri lönd munu bætast við á næstunni. Markhópurinn er hin svokallaða Airbnb kynslóð, þ.e. fólk sem skipuleggur ferðir sínar sjálft á netinu og notast ekki við ferðaskrifstofur eða kaupir tilbúnar pakkaferðir. Framundan er ár mikils vaxtar hjá fyrirtækinu sem stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki í ferðatækni á alþjóðlega vísu.

Myndrænt viðmót og persónuleg nálgun

Fyrirtækið leggur mikla áherslu á myndrænt viðmót sem er einfalt og skemmtilegt í notkun. Fólk sem elskar að skipuleggja sitt ferðalag sjálft byrjar á Travelade þar sem það getur fundið mikinn fjölda hugmynda að afþreyingu, bæði í formi ókeypis ábendinga frá ferðabloggurum og afþreyingarferða sem hægt er að bóka. Á vefnum er hægt að bæta þessum hugmyndum inn á persónulega lista til að skipuleggja ferðina. Til að einfalda notendum að skipuleggja draumaferðina sína mun Travelade í auknum mæli nýtta þrívíddarmyndir í samstarfi við Iceland 360 VR og gervigreindartækni til að sérsníða persónulegar lausnir út frá ferðastíl hvers og eins, en sú tækni verður þróuð í samstarfi við gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík með stuðningi Tækniþróunarsjóðs.

“Markmið okkar er að gera það jafn auðvelt að finna afþreyingu fyrir draumaferðalagið og það er auðvelt að hlusta á tónlist á Spotify. Í dag er ekkert mál að bóka flug og gistingu á netinu, en kröfuharðir ferðalangar eiga erfitt með að finna einstakar upplifanir sem eru sérsniðnar að sínum ferðastíl. Svipað og þegar fólk byrjar að safna hugmyndum á Pinterest, þá auðveldum við hjá Travelade fólki að safna hugmyndum, hanna sitt draumaferðalag, og bóka alla afþreyingu á einum stað. Okkar ferðalag hófst á Íslandi en heimurinn er undir á næstu árum.”  segir Andri Heiðar Kristinsson, annar af stofnendum Travelade

“Það eru spennandi tímar framundan hjá Travelade og við hjá Crowberry erum mjög ánægð með fyrstu fjárfestingu sjóðsins enda er teymið á bak við Travelade öflugt og hefur bæði tækni- og viðskiptaþekkingu og mikinn metnað.  það er mikilvægt að úr ferðaþjónustubylgjunni spretti upp alþjóðleg tæknifyrirtæki sem geta látið til sín taka á heimsmarkaði. Við hjá Crowberry höfum trú á því að Travelade sé á réttum tíma til að nýta sér þær breytingar sem eru að eiga sér stað á ferðahögun fólks um allan heim.” segir Hekla Arnardóttir, ein af stofnendum Crowberry Capital

Um Crowberry Capital

Crowberry Capital er nýsköpunarsjóður sem fjárfestir í ungum tæknifyrirtækjum sem ætla að vaxa hratt á alþjóðamörkuðum. Sjóðurinn var formlega stofnaður í júlí 2017 og er stærð sjóðsins 4 milljarðar. Crowberry var stofnaður af Helgu Valfells, Heklu Arnardóttur og Jennýju Ruth Hrafnsdóttur, sem hafa starfað lengi við fjárfestingar í nýsköpun.

Um Travelade

Andri Heiðar Kristinsson, fyrrum þróunarstjóri hjá LinkedIn í San Francisco, og Hlöðver Þór Árnason, fyrrum tæknistjóri hjá Já, stofnuðu sprotafyrirtækið Travelade fyrir um ári síðan. Nýlega sameinaðist félagið öðru ungu nýsköpunarfyrirtæki, Totalhost, til að styðja við frekari vöxt. Í nýrri stjórn Travelade eru stofnendur þess ásamt Hjálmari Gíslasyni frá fjárfestingarfélaginu Investa og Heklu Arnardóttur frá Crowberry Capital.