Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að allir, sem borga skatta á annað borð, greiða hærri skatta í dag en ef skattkerfið frá 2009 væri enn við líði. Þeir sem séu  með laun undir 200 þúsundum greiði það sama (miðað við sömu laun). Þeir sem séu með laun á bilinu 200 til 650 þúsund borgi 2,9% meira. Þeir sem eru með hærri laun en 650 þúsund borga 8,9% meira af launum sínum.

Tryggvi Þór birtir mynd á heimasíðu sinni sem sýnir muninn myndrænt.

Ekkert til að hreykja sér af

„En hvernig stendur þá á því að fjármálaráðherra og fjölráðherrann staðhæfa að skattbyrði 60% Íslendinga sé léttari í dag en árið 2009?“ Spyr Tryggvi Þór og heldur áfram.  „Við þeirri spurningu er einfalt svar: Laun flestra Íslendinga hafa lækkað umtalsvert á síðustu árum og þar með skattbyrði þeirra. Stjórnvöld hafa heykst á því verkefni að koma atvinnulífinu af stað sem er forsenda framþróunar lífskjara. Ég myndi því ekki hreykja mér hátt af léttari skattbyrði ef ég væri stjórnarliði!," skrifar Tryggvi Þór.