Tveir heppnir vinningshafar í bandaríska lottóinu Mega Million deila með sér 355 milljónum dala, jafnvirði rúmlega 41 milljarði króna. Miðarnir voru keyptir í Idaho og Washington.

Fram kemur í frétt CNN að líkur á sigri hafi verið einn á móti 176 milljónum. Hægt er að kaupa lottómiða í Mega Million í 41 ríki Bandaríkjanna og mynduðust raðir í gær þegar sala hófst.

Fyrir þá sem vilja reyna á vinningstölurnar í lottóinu hér á Íslandi voru vinningstölurnar 4, 8, 15, 25, 47 og „ofurkúlutalan“ var 42.