TVG-Zimsen hefur gert samstarfssamning við Modul Transport A/S um um alla flugfrakt til og frá Danmörku. Samningurinn tekur gildi nú um mánaðamótin. Starfsstöðin í Danmörku mun bera nafn TVG-Zimsen.

Fram kemur í tilkynningu frá TVG-Zimsen að Modul Transport starfi á öllum sviðum flutninga, hvort sem um ræði sjó-, land- og/eða flugflutninga. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Hvidovre rétt við Kastrup flugvöll í Kaupmannahöfn. Fyrirtækið er jafnframt með skrifstofu í Vejle.