Ef litið er á allar tilkynntar hópuppsagnir, sem borist hafa síðustu mánuði og koma til framkvæmda á árinu 2009, má sjá að flestir eru að missa vinnu nú í febrúar, eða yfir 1.100 manns, tæplega 500 manns missa vinnuna í byrjun mars, ríflega 200 í byrjun apríl og um 100 manns í maí.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar í dag.

Í janúar bárust Vinnumálastofnun 10 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals 167 einstaklingum.

Fjórar tilkynningar voru úr mannvirkjagerð með samtals 50% þeirra sem sagt var upp með þessum hætti, aðrar uppsagnir dreifðust á flutningastarfsemi, fjármálastarfsemi, verslun, iðnað og upplýsinga- og útgáfustarfsemi.

Stofnunin segir helstu ástæður uppsagna vera rekstrarerfiðleikar, verkefnaskortur og endurskipulagning.

Þá kemur fram að flestar uppsagnirnar sem tilkynntar voru í janúar koma til framkvæmda í maí, en allmargar í mars og apríl.

Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.