Alls komu 135.303 farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll í júlí 2011 samanborið við 119.652 manns í júlí 2010. Umferð um flugvöllinn jókst því um 13,1% á milli ára. Í júnímánuði komu alls 109.562 farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll. Aukning milli mánaða er því 23,5%.

Samtals komu  501.312 þúsund manns til landsins um flugvöllin frá janúar til júlí samanborið við 424.528 manns á sama tímabili fyrir ári.  Þetta er aukning um 18,1%. Þetta kemur fram í hagvísum Hagstofu Íslands.