Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,75% í 21,3 milljarða króna viðskiptum í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,81% og sá óverðtryggði um 0,60%.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði eilítið, eða um 0,05% og endaði í 937,95 stigum. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 1,05% og Icelandair um 0,20%. Bréf Haga lækkuðu hins vegar um 1,17% og Marels um 0,38%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 271 milljón króna í dag og var langmest velta með bréf Haga og Marels.