Bandaríski bankarisinn Citigroup, sem stýrir söluferli á bresku verslanakeðjunni Somerfield, hefur beðið hugsanlega kaupendur að leggja fram boð eigi síðar en á miðvikudag, samkvæmt heimildum The Telegraph.

Segir blaðið að Asda og J Sainsbury, sem hafa bæði verið nefnd sem líkleg til að bjóða í fyrirtækið, muni ekki geta skilað tilboðum fyrir tilsettan tíma.

Einnig hefur blaðið heimildir fyrir því að tilraunir Co-op til fara í samstarf við Waitrose um tilboð hafi farið út um þúfur.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum. Þeir áskrifendur sem ekki hafa sótt um aðgangsorð til að lesa blaðið á vefnum geta gert það hér .