Unnið er að endurskoðun á starfsemi Frjálsa fjárfestingabankans og Spron verðbréfa með það að markmiði að ná fram frekari hagræðingu með samþættingu verkefna milli félaganna og Spron. Þetta kemur fram í tilkynningu Spron.

Kristinn Bjarnason er framkvæmdastjóri Frjálsa Fjárfestingabankans og Björg Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri Spron verðbréfa.