Politica, félag stjórnmálafræðinema í Háskóla Íslands, hélt fund á fimmtudagskvöld um valdatíð Davíðs Oddssonar fyrrverandi forsætisráðherra og borgarstjóra.

Framsögumenn voru Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri-grænna sem setið hefur á alþingi frá 1995, Vilhjálmur Egilsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins 1991-2003 og núverandi rektor Háskólans á Bifröst og Hannes H. Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði við HÍ.

Fundurinn var líflegur og greindi Bryndís Bjarnadóttir fundarstjóri í byrjun hans frá því að ekkert þeirra sem kom að því að halda fundinn hafi verið fædd þegar Davíð varð forsætisráðherra og þau hafi verið á bilinu 11-13 ára þegar hann hætti.