Til stendur að opna nýjan sportbar í Austurstræti þar sem Hvíta perlan hefur verið starfrækt. Nýi barinn verður rekinn undir nafninu Úrilla górillan og verður í sama anda og samnefndur sportbar á Stórhöfða.

Stofnað hefur verið einkahlutafélagið R2D2 ehf. um rekstur miðbæjarbarsins og að sögn eins eigenda félagsins, Valgarðs Þórarins Sörensen, á líka að breyta nafni félagsins utan um Stórhöfðabarinn.

„Við keyptum það félag, en okkur hefur lengi langað til að eiga félögin C3PO ehf. og R2D2 ehf. í höfuðið á vélmennunum frægu úr stjörnustríðsmyndunum. Við erum núna komnir með R2D2 og C3PO er á leiðinni.“ Valgarð á einnig félagið sem rekur Laundromat í Austurstræti.