Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,7% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú, kl. 10:30 í 4.895 stigum.

Bakkavör [ BAKK ] hefur hækkað mest félaga eða um 3,5%. Þá hefur Exista [ EXISTA ] hækkað um 1,6% og Landsbankinn [ LAIS ] um 1,15%.

Aðeins tvö félög hafa lækkað. Atlantic Airways [ FO-AIR ] hefur lækkað um 0,7% og Atlantic Patrolium [ FO-ATLA ] hefur lækkað um 0,6%.

Ekki er mikil velta með hlutabréf en hún nemur um 600 milljónum.