Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði við opnum Kauphallarinnar í morgun og hefur nú hækkað um 0,7%.

Kaupþing [ KAUP ] hefur hækkað mest fyrirtækja eða um 2,15%. Þá hefur Alfesca [ A ] hækkað um 1,35% og Össur [ OSSR ] um 0,7%.

Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] hæfur lækkað mest eða um 3%. Þá hefur FL Group [ FL ] lækkað um 1,4% og Spron [ SPRON ] um 1%.

Mest er veltan með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] eða um 750 milljónir. Þá voru ein stök utanþingsviðskipti fyrir 707 milljónir í morgun.

Annars er heildarvelta nú kl. 10:20 um 2,3 milljarðar.