Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,5% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað (kl. 10:20) í 5.212 stigum.

Aðeins eitt félag, Century Aluminum [ CENX ] hefur hækkað í morgun eða um 2,6%.

Þá hefur Spron [ SPRON ] lækkað mest félaga eða um 2,3%, FL Group [ FL ] hefur lækkað um 0,9% og Glitnir [ GLB ] sömuleiðis.

Velta með hlutabréf er um 4,3 milljarðar en þar af eru 4,1 milljarður með bréf í Glitni.