Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,1% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan tíu í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög hafa hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er um 1,2 milljarður. Þar af eru um 360 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og 330 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ].

Þá hefur gengi krónunnar styrkst um 0,7% frá því í morgun.