OMX Iceland 6 vísitala kauphallar Nasdaq OMX á Íslandi verður óbreytt á síðari helmingi ársins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá kauphöllinni sem endurskoðar vísitöluna tvisvar á ári. Þetta felur í sér að auk Icelandair, Marels og Össurar verða færeysku félögin Atlantic Petroleum, Atlantic Airways og Bank Nordik áfram í vísitölunni sem venjulega kallast úrvalsvísitalan.