Utanríkismálanefnd Alþingis hefur ákveðið auglýsa sérstaklega eftir skriflegum athugasemdum við tvær þingsályktunartillögur er varða umsókn um aðild að Evrópusambandinu sem nefndin hefur nú til umfjöllunar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni en nefndin veitir viðtöku umsögnum og erindum frá félögum, samtökum og einstaklingum á netfangið [email protected] en óskað er eftir að undirritað frumrit umsagnar berist nefndinni jafnframt bréflega.

Umsagnir og erindi þurfa að berast nefndinni fyrir 15. júní nk. Ekki er hægt að tryggja úrvinnslu umsagna sem berast eftir þann tíma.

Þingsályktunartillögurnar tvær eru á vef Alþingis á vefslóðunum: http://www.althingi.is/altext/137/s/0038.html og http://www.althingi.is/altext/137/s/0054.html