Útflutningur dróst saman um 5,6% á milli 4. ársfjórðungs 2011 og 1. ársfjórðungs 2012 og innflutningur um 5,2%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. Á sama tíma jókst landsframleiðsla um 2,4% að raungildi. Þjóðarútgjöld jukust um um 3,4%, sem skýrist að mestu af mikilli aukningu birgða. Einkaneyslan jókst um 0,3% og samneyslan um 0,4%.

Tölurnar eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára. Ef ekki er leiðrétt fyrir árstíðir jókst landsframleiðsla um 4,5% frá sama ársfjórðungi fyrra árs.