Valdimar Gunnar Sigurðsson hefur bæst í hóp sölustjóra hjá sölu- og þjónustuskrifstofu Marel á Íslandi. Hann mun starfa náið með Óskari Óskarssyni við sölu á vörum og þjónustu til sjávarútvegsfyrirtækja ásamt því að sinna kjöt- og kjúklingaiðnaði hjá Marel.

Valdimar er málarameistari að mennt. Hann hefur diplómu í verslunarstjórnun og hefur stundað nám í sjávarútvegsfræðum. Hann hefur verið til sjós, unnið sem málarameistari og starfað í sölu-og markaðsmálum í fjölmörg ár.