Hlutfall heildarvanskila af útlánum í lok 2. ársfjórðungs 2008 er 1,1% samanborið við 0,5% í lok 1. ársfjórðungs 2008.

Vanskilahlutfallið er þannig tvöfalt hærra en það var í lok síðasta ársfjórðungs en þá hafði hlutfallið hækkað lítillega eftir að hafa verið í sögulegu lágmarki í árslok 2007.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins (FME) en stofnunin hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok júní 2008 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.

Talnaefnið nær til vanskila sem staðið hafa lengur en einn mánuð. Um er að ræða brúttó vanskil, þ.e. ekki hafa verið dregnar frá fjárhæðir sem lagðar hafa verið til hliðar sem sérstakar afskriftir. Sýnd er þróun vanskila frá árslokum 2000. Vanskilaupplýsingarnar sýna tölur fyrir innlánsstofnanir án dótturfélaga þeirra.

Á yfirlitinu er einnig að finna upplýsingar um vanskilahlutföll með annars vegar eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf.  Þannig er leitast við að taka tillit til áhrifa mikillar útlánaaukningar síðustu misseri á hlutfallstölurnar, en mikil útlánaaukning kann að koma fram í auknum vanskilum síðar.

Vanskilahlutföllin mæld á þessa mælikvarða eru 1,9% og 2,2% af útlánum samanborið við 0,9% og 1,1% í lok 1. ársfjórðungs 2008.

„Hafa ber í huga að þátttaka innlánsstofnana í fasteignalánum frá og með seinni hluta ársins 2004 kann að hafa haft áhrif á þróun vanskila sem sýnd eru á yfirlitinu, einkum vanskilahlutfall einstaklinga,“ segir á vef FME.

Vanskilahlutföll fyrirtækja tvöfaldast á milli ársfjórðunga

Vanskilahlutfall fyrirtækja er 1,1% í lok 2. ársfjórðungs 2008 samanborið við 0,5% í lok 1. ársfjórðungs 2008.

Vanskilahlutfall fyrirtækja miðað við eins árs tímatöf er 2,1% samanborið við 0,9% í lok 1. ársfjórðungs 2008.

Vanskilahlutfallið miðað við 2ja ára tímatöf er 2,4% samanborið við 1,1% í lok fyrsta ársfjórðungs 2008.

Vanskilahlutföll fyrirtækja hafa þannig tvöfaldast á milli fjórðunga en eru ennþá töluvert lægri en þau voru á tímabilinu 2001 til 2004.

Lítil aukning á vanskilum einstaklinga

Vanskilahlutfall einstaklinga er 1,0% í lok 2. ársfjórðungs samanborið við tæplega 0,8% í lok 1. ársfjórðungs 2008.

Vanskilahlutföll einstaklinga miðað við eins og tveggja ára tímatöf eru  1,3% og 1,5% samanborið við 1,0% og 1,1% í lok 1. ársfjórðungs 2008.

Vanskil einstaklinga hafa þannig aukist hægar en fyrirtækja og eru tiltölulega lág í samanburði við árin fyrir 2006.   Hafa verður í huga við lestur yfirlitanna að í árslok hvers árs eru færð út endanlega afskrifuð útlán sem koma til lækkunar á brúttó vanskilafjárhæðum og hafa þannig áhrif á vanskil í lok 4. ársfjórðungs og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.