Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt til að vaxtasvindl verði talin sem innherjasvindl og þar af leiðandi refisverð. Þetta er gert í framhaldi af Libor málinu þar sem Barclays bankinn átti að greiða sektir fyrir að hafa haft óeðlilega mikil áhrif á Libor vexti.

Viviane Reding, dómsmálastjóri ESB, segir þetta geta stöðvað ólögmæta starfsemi innan bankageirans. Aðildalönd eiga eftir að samþykkja þessi nýju lög.