Velta á fasteignamarkaði  lækkaði um 28% á milli vikna en í vikunni sem leið nam veltan um 2,9 milljörðum en í fyrri viku nam veltan um 4,1 milljörðum króna. Þetta er minnsta velta frá því í lok janúar samkvæmt tölur frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Þá lækkar meðalvelta á hvern samning nokkuð og er 29,1 milljónir í vikunni en var í vikunni á undan 37,6 milljónir. Meðalvelta á hvern samning hefur ekki verið jafn lág frá því um miðjan janúar.

Á meðfylgjandi línuriti má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu nokkurra vikna og breytinga á henni milli ára. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið var 102 en voru 110 í vikunni þar áður.

Þinglýstir samningar eru að meðaltali 90 á viku frá áramótun. Ef litið er til ársbreytingar á veltu hefur kaupsamningum fækkað um 43%