Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í vikunni fyrir jól var með nokkuð eðlilegri móti en í vikunni þar á undan.

Þannig nam veltan í vikunni 1.506 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands en í vikunni þar á undan nam veltan 4.603 milljónum króna. Rétt er að taka fram að meðaltal á viku nemur, það sem af er ári, um 1.370 milljónum króna þannig að síðastliðin vika var meira „í takt“ við það sem verið hefur á árinu en vikan þar á undan.

Nú hefur það tvisvar gerst á rúmum mánuði að velta á fasteignamarkaði hefur verið mjög svo ólík því sem hún hefur verið síðustu 18 mánuði eða svo. Í lok nóvember nam veltan á einni viku rúmum 5 milljörðum króna og sem fyrr segir nam hún um 4,6 milljörðum um miðjan desember. Í bæði skiptin nam meðalverð rétt rúmum 100 milljónum króna á hvern samning sem verður að teljast heldur óvenjulegt.

Fyrir vikið hefur fjögurra vikna meðalvelta farið nokkuð úr föstum skorðum miðað við það sem á undan er gengið. Fjögurra vikna meðalvelta nemur nú 2.456 milljónum króna en var í síðustu viku 3.342 milljónir króna og hafði þá ekki verið hærri síðan í mars 2008.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 126% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 77% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta lækkar lítillega á milli vikna eða aðeins 6 milljónir króna. Þannig nemur 12 vikna meðalvelta nú 2.048 milljónum króna en í þar síðustu viku hafði 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri í 12 mánuði þegar hún nam 2.055 milljónum króna.

Tólf vikna meðalvelta hefur nú aukist um 47% á milli ára en á sama tíma í fyrra hafði 12 vikna meðalvelta dregist saman um 76% á milli ára.

Til gamans má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.349 milljónir króna og hækkar um 13 milljónir á milli vikna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 2.152 milljónum króna og hefur því dregist saman um 37% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 57 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 45 samninga í vikunni áður. Það er nokkuð yfir meðaltali en að alls hefur 39 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning í vikunni var 26,4 milljónir króna, samanborið við rúmar 102 milljónir króna í vikunni á undan en sem fyrr segir var það nokkuð yfir meðaltali. Meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 34,7 milljónir króna.