Heildarvelta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu nam 5.566 milljónum króna í liðinni viku. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands .

Alls voru gerðir 106 samningar um eignir í fjölbýli, 37 samningar um sérbýli og átta samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var nokkuð yfir meðaltali síðustu tólf vikna sem nemur 4.306 milljónum króna. Meðalupphæð á hvern kaupsamning var 36,9 milljónir króna.