Gengi hlutabréfa Marel hækkaði um 0,64% í 33,7 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,61% í 30 milljóna króna viðskiptum.

Önnur breyting varð ekki á gengi hlutabréfa. Á hinn bóginn var velta með hlutabréf Haga upp á rúmar 200 milljónir króna. Veltan með Haga-bréfin skipar samkvæmt því stærstan hluta heildarveltuna á hlutabréfamarkaði í dag. Hún nema 265,9 milljónum króna.

Úrvalsvísitalan hreyfðist nær ekkert við þetta. Hún hækkaði um 0,04% og endaði í 1.066 stigum.