Heildarvelta með fasteignir á höfuðborgarsvæðinu nam 4.699 milljónum króna vikuna 31. júlí til 6. ágúst sl. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands .

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 130 á tímabilinu. Þar af voru 94 samningar um eignir í fjölbýli, 27 samningar um sérbýli og níu samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Meðalupphæð á hvern samning nam 36,1 milljón króna.