Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 101,4 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins. Verðmætið var samanborið við 108,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um rúmlega 7 milljarða króna eða 6,5% á milli ára. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Aflaverðmæti botnfisks var rúmlega 57,7 milljarðar króna og dróst saman um 9,5% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti þorskafla var um 29,7 milljarðar og dróst saman um 8,6% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 7,3 milljörðum og dróst saman um 13,6% en verðmæti karfaaflans nam tæpum 8,4 milljörðum, sem er 8% samdráttur frá fyrstu átta mánuðum ársins 2012. Verðmæti úthafskarfa nam 2,1 milljarði króna á fyrstu átta mánuðum ársins og jókst um 8,4% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 9,1% milli ára og nam rúmum 5,5 milljörðum króna í janúar til ágúst 2013.

Verðmæti uppsjávarafla nam tæpum 33,1 milljörðum króna í janúar til ágúst 2013, sem er um 1,9% aukning frá fyrra ári. Þá aukningu má rekja til loðnuafla og kolmunnaafla. Aflaverðmæti loðnu nam 15,6 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins sem er 19,2% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti kolmunna jókst um 9,9% frá fyrra ári og var rúmlega 2,8 milljarðar króna í janúar til ágúst 2013. Aflaverðmæti síldar dróst saman um 37,6% milli ára og var tæplega 1,6 milljarðar króna í janúar til ágúst 2013. Aflaverðmæti makríls var um 12,3 milljarðar króna á fyrstu átta mánuðum ársins sem er 3,6% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti flatfisksafla nam rúmum 6,3 milljörðum króna, sem er 17% samdráttur frá janúar til ágúst 2012.