Verðmæti afla íslenska fiskiskipaflotans jókst um 10,7% á föstu verðlagi á milli ára í september. Það sem af er ári hefur verðmætið aukist um 15,3% frá sama tíma í fyrra.

Fram kemur í upplýsingum Hagstofunnar , að aflinn nam 108.453 tonnum í síðasta mánuði samanborið við 105.765 í fyrra, sem er rétt rúmlega 2,5% meiri afli en í sama mánuði í fyrra.