Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) ákvað á fundi fyrr í dag að efna til atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hjá þeim hjúkrunarfræðingum sem starfa samkvæmt kjarasamningi félagsins við fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs. Kemur þetta fram í tilkynningu frá félaginu.

Atkvæðagreiðslan fer fram dagana 4. til 10. maí og nær til rúmlega 2.100 hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá ríkinu. Vænta má niðurstöðu að morgni mánudagsins 11. maí.

Kosið er um að ótímabundið verkfall hjúkrunarfræðinga sem hefst þann 27. maí næstkomandi náist samningar ekki fyrir þann tíma. Verði af verkfalli mun það hafa áhrif á allar heilbrigðisstofnanir sem eru í rekstri ríkisins auk annarra vinnustaða hjúkrunarfræðinga hjá hinu opinbera.

Samninganefnd Fíh vísaði viðræðum félagsins og ríkisins til ríkissáttasemjara þann 1. apríl síðastliðinn. Frá þeim tíma hafa verið haldnir þrír árangurslausir fundir og segir í tilkynningunni að ekki sé að merkja mikinn samningsvilja hjá samninganefnd ríkisins. Því sjái félagið sig nú knúið til að kanna hug félagsmanna til verkfalls.