Forsvarsmenn samninganefnda VR, LÍV, Flóabandalagsins, StéttVest og Samtaka atvinnulífsins hafa náð samkomulagi um frestun verkfallsaðgerða. Aðgerðunum, sem áttu að hefjast á fimmtudaginn 28. maí hefur nú verið frestað um fimm sólarhringa. Þetta kemur fram á vefsíðum verkalýðsfélaganna og SA.

„Ekki verður upplýst um einstaka efnisþætti viðræðna aðila fyrr en gengið hefur verið frá drögum að samningi sem lagðar verði fyrir samninganefndir félaganna. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en 28. maí næstkomandi," segir í tilkynningu á vefsíðunum.

Miðað við fimm daga frestun lítur skipulag verkfallsaðgerðanna svona út:

  • Hópbifreiðafyrirtækið 2. og 3. júní.
  • Hótel, gististaðir og baðstaðir 4. og 5. júní.
  • Flugafgreiðsla 5. og 6. júní.
  • Skipafélög og matvöruverslanir 7. og 8. júní.
  • Olíufélög 9. og 10. júní.
  • Allsherjarverkfall 11. júní