Þann 11. október síðastliðinn lækkaði Fóðurblandan verð á kjarnfóðri um 0,5-1%, en Mjólkurfélag Reykjavíkur lækkaði verð sama dag um 1%. Áður hafði verð lækkað hjá Fóðurblöndunni í byrjun september um 2%.

Tæplega eins prósents verðlækkun varð í upphafi vikunnar á kjarnfóðurverði Mjólkurfélags Reykjavíkur ásamt því sem þeir bættu við tveimur nýjum tegundum, TMR blöndu 38% með byggi og MR K-21 kúafóðri. Áður hafði MR lækkað verð hjá sér um 2% í byrjun september eins og Fóðurblandan og Bústólpi. Bændur eru því að upplifa töluverða verðlækkun á þessari mikilvægu rekstrarvöru.