Iceland-verslun Jóhannesar Jónssonar, sem löngum hefur verið kenndur við Bónus, opnar í Engihjalla í Kópavogi 28. júlí næstkomandi. Hann ætlar sömuleiðis að opna netverslun.

Jóhannes segir í samtali við Vísi undirbúning fyrir opnun verslunarinnar ganga vel. Starfsfólkið vann áður í Bónus.

Viðskiptablaðið greindi frá því fyrst fjölmiðla í maí að Jóhannes stefndi á að opna Iceland-verslun ásamt Malcolm Walker, stofnanda bresku verslunarinnar Iceland.

„Það lá alltaf í loftinu að koma til baka eftir að mér var bolað út," sagði Jóhannes í samtali við Viðskiptablaðið á sínum tíma þar sem hann m.a. ræddi um brotthvarf sitt út stjórn Haga.