Verslunin Besta er flutt af Suðurlandsbraut að Ármúla 23. Besta er sérvöruverslun með hreinlætistæki sem býður úrval af hágæða tækjum, áhöldum og efnum til hreingerninga eins og segir í frétt fyrirtækisins.

Í nýja húsnæðinu, sem er mun rúmbetra en hið eldra, stóreykur Besta vöruúrvalið og býður upp á vörur til fleiri nota en áður segir í tilkynningu.