Vigfús Gíslason hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Flügger ehf., sem áður var Harpa Sjöfn hf. og Harpa hf. Þá hefur Halldór Snorrason verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Vigfús er fimmtugur og hefur starfað í 26 ár sem sölustjóri hjá Flügger ehf. og forverum félagsins. Halldór er 39 ára og hefur starfað 13 ár hjá sömu fyrirtækjum. Flügger ehf. er að fullu í eigu Flügger A/S í Danmörku og hefur verið það síðustu 3 árin.

Jón H. Karlsson og Karl Jóhann Jóhannsson hafa látið af störfum framkvæmdastjóra og aðstoðarframkvæmdastjóra hjá félaginu.