Vilhjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson hdl. hefur bæst í eigendahóp Lögfræðistofu Reykjavíkur. Fyrir eru þau Tómas Jónsson hrl., Guðrún Helga Brynleifsdóttir hrl., Ólafur Garðarsson hrl., Jóhannes Albert Sævarsson hrl., Þórður Heimir Sveinsson hdl., Grétar Dór Sigurðsson hdl. og Eggert B. Ólafsson hdl.

Í tilkynningu segir að Vilhjálmur hafi starfað hjá Borgarlögmönnum undanfarin ár en þar á undan starfaði hann sem lögfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu. Helstu starfssvið Vilhjálms eru fjármuna-og fyrirtækjaréttur, skaðabótaréttur, gjaldþrotaréttur, samkeppnisréttur, neytendaréttur og stjórnsýsluréttur auk málflutnings.