Stjórn Félags atvinnurekenda hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á fjármálaráðherra og Alþingi að hraða eins og kostur er samþykkt frumvarps sem kveður á um breytingar á vörugjaldi og virðisaukaskatti.

Fram kemur í ályktuninni að félagið hafi áður lýst eindregnum stuðningi við þau áform að afnema vörugjald og einfalda kerfi neysluskatta. Flókið og ógagnsætt skattkerfi leiði til sóunar, bjagi verðvitund neytenda og skapi ekki eðlilega samkeppnishvata.

Félagið hefur hins vegar áhyggjur af því að málið virðist enn langt frá því að vera frágengið, þar sem ekki virðist full samstaða um það milli stjórnarflokkanna og enn sé verið að skoða aðrar útfærslur en þær sem lagðar eru til í upphaflegu frumvarpi fjármálaráðherra.

Að lokum segir í ályktuninni:

„Félag atvinnurekenda leggur áherslu á að Alþingi samþykki sem fyrst þær breytingar á kerfi skatta og vörugjalda sem eiga að taka gildi 1. janúar 2015. Á umliðnum árum hefur verið alltof algengt að slíkar breytingar verði ekki að lögum fyrr en á lokaspretti þingstarfa í desember og þannig gefist alltof skammur fyrirvari, jafnt fyrir opinberar stofnanir og atvinnulífið í landinu, að undirbúa þær, aðlaga upplýsingakerfi, upplýsa starfsfólk og viðskiptavini og þar fram eftir götunum. Stjórn FA minnir á að desember er annasamasti tími ársins hjá mörgum fyrirtækjum í verslun og þjónustu.

Stjórn FA varar ennfremur við hugmyndum sem fram hafa komið að undanförnu um að flækja frekar kerfi neysluskatta en gert er ráð fyrir í núverandi frumvarpi, til dæmis með því að setja gosdrykki og sælgæti í efra þrep virðisaukaskattsins. Slík breyting yrði afar flókin í framkvæmd og myndi enn frekar torvelda innleiðingu breytinganna á skömmum tíma.“