Skráning á markað í Noregi samhliða skráningu hér á landi eykur hlut fyrirtækja á alþjóðlegum markaði og eykur sýnileika. Þetta segir Bente Landsnes, forstjóri Kauphallarinnar í Osló, sem stödd er hér á landi til að ræða við stjórnendur íslenskra fyrirtækja.

Bente segir viðræður hafa gengið vel en segir hindranir ennþá vera í veginum eins og gjaldeyrishöftin.

VB Sjónvarp ræddi við Bente.