Formenn stjórna Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) og Sparisjóðs vélstjóra (SPV) hafa í umboði stjórna undirritað viljayfirlýsingu um sameiningu sparisjóðanna. Stjórnir beggja sjóðanna eru sammála um að fleiri sparisjóðir geti gengið til sameiningar við SPRON og SPV enda muni hagur sparisjóðanna tveggja eflast við sameiningu og jafnframt hagur annarra sparisjóða í landinu ef af frekari sameiningu verður.

Í tilkynningu til Kauphallar segir orðrétt: "Verðmætamat og greining hefur farið fram á báðum sjóðum af óháðum endurskoðanda. Á grundvelli hennar og annarra atriða sem mikilvæg eru í tengslum við samrunann eru stjórnirnar sammála um að hlutfall SPRON verði 60/100 og hlutfall SPV verði 40/100 í sameinuðum sparisjóði.

Jón Þorsteinn Jónsson, formaður stjórnar SPV, telur að sameining af þessu tagi muni bæta hag stofnfjáreigenda, auka verðmæti stofnfjárbréfa og gera viðskipti með þau greiðari.

Óskar Magnússon, formaður stjórnar SPRON, telur þessu til viðbótar að sameining sjóðanna muni leiða til hagræðingar í rekstri og aukinna sóknarfæra. Þá væntir hann þess að arðsemi verði betri til hagsbóta fyrir viðskiptamenn sparisjóðanna og jafnframt skapa starfsmönnum traustara starfsumhverfi.

Á næstunni verður í þessum tilgangi skipuð samrunanefnd, sem í eiga sæti tveir menn frá hvorum sjóði, Jón Þorsteinn Jónsson formaður stjórnar SPV og Óskar Magnússon formaður stjórnar SPRON ásamt endurskoðendum beggja sparisjóðanna þeim Sigurði Jónssyni og Þóri Ólafssyni. Á meðal verkefna samrunanefndarinnar verður að setja fram markmið með samrunanum, áætla samrunaáhrif, gera tillögu um samrunaaðferð, skipulag, stjórn og helstu stjórnendur. Ef sameining sjóðanna nær fram að ganga er stefnt að því að hún taki gildi 1. janúar 2005.