Svandís Svavarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna hefur farið fram á það við forsætisnefnd Alþingis að hún óski eftir rannsókn og skýrslu frá Ríkisendurskoðun um tæplega 200 milljóna króna styrkveitingum forsætisráðuneytisins til ýmissa verkefna. Óskin er borin fram fyrir hönd þingflokka Bjartrar framtíðar, Pírata, Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Svandís segir í tilkynningu sem hún sendi fjölmiðlum að í nýlegum svörum forsætisráðuneytisins við tveim fyrirspurnum komi fram að undir lok síðasta árs hafi forsætisráðuneytið úthlutað tæpum 200 milljónum króna til húsfriðunarverkefna, menningartengdra byggðarverkefna, fornleifaverkefna og atvinnuuppbyggingar. Svandís segir að svarið leiði í ljós óljósa stjórnsýslu og ógagnsæi við úthlutun opinbers fjár og því telji þingflokkarnir tilefni til að óska eftir aðkomu Ríkisendurskoðunar að málinu.