ÁTVR stefnir að því að opna að nýju Vínbúð í Grafarvogi á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu .

Vínbúðinni í Spönginni var lokað fyrir sex árum síðan og segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, að einkum sé horft þangað með leigu á húsnæði í huga, án þess þó að aðrir staðir séu útilokaðir.

Þá segir hún að jafnframt sé horft til þess að opna Vínbúð á ný í Garðabæ, en verslun fyrirtækisins var lokað þar í ársbyrjun 2011. Það muni þó ekki gerast á þessu ári.