Séð og heyrt greindi nýlega frá því að vinslit hefðu orðið á milli þeirra Ívars Guðmundssonar og Arnars Grant, sem síðustu ár hafa í samstarfi við MS staðið fyrir framleiðslu á Hámarki próteindrykkjum.

Hér virðist vera um auglýsingatrix að ræða en á vef mbl.is mátti í vikunni finna auglýsingu þar sem vefnotendur gátu látið þá gera prakkarastrik á hvor öðrum. Vinskapur þeirra virðist því vera í Hámarki.