Niðurstaða virðisrýrnunarprófs á aflaheimildum HB Granda í lok júní sýndi að virði félagsins lækkar um 22,3 milljarða króna. Rekstrarvirði félagsins er nú talið um 260 milljónir evra miðað við 397 milljónir evra fyrir virðisrýrnarprófið.

Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu HB Granda er ástæðan fyrir þessu ný lög Alþingis um veiðigjöld sem fela í sér rúmlega fjórföldun á veiðigjöldum fyrirtækisins frá síðasta fiskveiðiári. Gert er ráð fyrir tveggja milljarða króna veiðigjöldum vegna fiskveiðiársins 2012/2013.

HB Grandi tapaði 230 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við núverandi gengi en tekjur félagsins námu um 15,2 milljörðum króna á tímabilinu. Til samanburðar nam hagnaðurinn 2,4 milljörðum króna á fyrri hluta síðasta árs.

Uppgjör HB Granda