Viðræður eru hafnar á milli BYRS Sparisjóðs og Sparisjóðs Norðlendinga um mögulega sameiningu en markmiðið er að styrkja stöðu sparisjóðanna í harðnandi samkeppni á fjármálamarkaði, að því er segir í fréttatilkynningu.

Þar segir að stefnt sé að því að miða skiptahlutföll við sex mánaða uppgjör sjóðanna sem birt verða í lok ágúst. Verði niðurstaða viðræðnanna jákvæð yrði sameining háð samþykki stofnfjáreigenda beggja sjóðanna, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins.

Engin tímamörk hafa verið sett fyrir viðræðurnar en stefnt er að því að sameining komi í kjölfar sameiningar BYRS og Sparisjóðs Kópavogs, sem nú er í gangi.

Sparisjóður Norðlendinga var stofnaður þann 30. júní 1997 með samruna Sparisjóðs Akureyrar og Arnarneshrepps og Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps. Starfsmenn eru 26 talsins.