Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan desember, er 356,3 stig og hækkar um 0,31% frá fyrra mánuði, en vísitalan gildir fyrir janúar, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 12,5%.

Árið 2006 var vísitala byggingarkostnaðar að meðaltali um 8,6% hærri en árið 2005.